Algengar spurningar
Selur Byssusalan byssur?
Engin bein sala á sér stað í gegnum Byssusöluna og er vefurinn aðeins til þess að koma á samskiptum milli kaupenda og seljanda.
Hvað kostar að auglýsa á Byssusölunni?
Allar söluauglýsingar á vefnum eru notendum að kostnaðarlausu.
Tekur Byssusalan söluþóknun?
Byssusalan tekur enga söluþóknun. Í raun og veru kemur Byssusalan aðeins kaupanda og seljanda saman en kemur annars ekki neitt nálægt sölum.
Geta fyrirtæki auglýst vörur til sölu á Byssusölunni?
Fyrirtæki sem eru með umboðssölu/endursölu á notuðum byssum geta óskað eftir aðgangi.
Hvernig geri ég góða auglýsingu?
Við mælum með að því skrá auglýsingar eins nákvæmt og völ er á. Ef þú vilt koma fleiri upplýsingum að en auglýsingaformið leyfir þá má alltaf skrá fleiri upplýsingar í lýsingardálkinn. Ef þú vilt að tilvonandi kaupendir hafi samband við þig símleiðs eða með vefpósti þá er þér velkomið að skrá það í lýsingardálkinn en þá er það öllum notendum síðunnar sýnilegt.
Hvernig hafa kaupendur samband við mig?
Tilvonandi kaupendur geta sent þér skilaboð í gegnum Byssusöluna með því að fylla út form fyrir neðan auglýsinguna. Til þess að skoða skilaboð þarft þú að vera sem innskráður notandi.
Ef þú vilt að kaupendir hafi samband við þig símleiðs eða með vefpósti þá er þér velkomið að skrá það í lýsingardálkinn en þá er það öllum notendum síðunnar sýnilegt.
Hvernig breyti ég auglýsingunni minni?
Þú getur breytt auglýsingunni þinni með því að fara inn á þinn notanda og smella á Mínar auglýsingar.
Seljandi svarar ekki skilaboðum
Það getur komið fyrir að seljandi svarar ekki skilaboðum. Í þeim tilfellum er hægt að tilkynna vöru og seljanda á auglýsingasíðu viðkomandi.
Tekur Byssusalan að sér umboðssölu?
Byssusalan tekur ekki að sér umboðssölu en hérna má nálgast lista yfir þau fyrirtæki sem gera það.
Það vantar kalíber, framleiðanda eða flokk á Byssusöluna
Ef það vantar kalíber, framleiðanda eða flokk á Byssusöluna er velkomið að senda á okkur línu og við græjum það!
Það er auglýsing horfin af Byssusölunni
Umrætt auglýsing getur hafa verið tekin út af seljanda við sölu eða viðkomandi hefur ákveðið að bíða með sölu.
Það getur einnig verið að auglýsingin hafi ekki uppfyllt skilyrði Byssusölunnar.
Hvernig skrái ég á mig eða annan aðila skotvopn?
Lögreglan sér alfarið um skráningu skotvopna. Byssusalan hefur enga milligöngu milli kaupanda og seljenda. Byssusalan vill þó minna seljendur á að afhenda aldrei byssur nema að kaupheimild frá Lögreglustjóra liggi fyrir.